Heildsalan Bamberg ehf.
Skilmálar
Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru hjá Heildsölunni Bamberg ehf., kt. 680624-1000, Stangarhyl 2, 110 Reykjavík - í skilmálum þessum nefnt “Heildsalan”. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Heildsölunnar annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.
Verð á vefsíðu þessari eru án virðisaukaskatts og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.
Heildsalan áskilur sér einhliða rétt til að breyta skilmálum þessum með birtingu á heimasíðu félagsins, www.bambergehf.is
Vöruafhending
Pantanir fyrir höfuðborgarsvæðið eru almennt afgreiddar á þriðjudögum og fimmtudögum, eða eftir samkomulagi. Pantanir fyrir landsbyggðina eru afgreiddar til flutningsaðila á þriðjudögum og fimmtudögum og eru keyrðar út samkvæmt akstursáætlun flutningsaðila, eða eftir samkomulagi.
Pantanir fyrir höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina þurfa að berast fyrir lok mánudags og miðvikudags til að vera afgreiddar á þriðjudegi og fimmtudegi.
Vöruskil
Ef skila á vöru (hver sem ástæðan er), skal kaupandi koma athugasemdum til viðkomandi sölusviðs eða þjónustudeildar innan 48 klst. frá móttöku vöru.
Það er því með öllu óheimilt að afhenda skilavöru til bílstjóra Heildsölunnar, senda í aðkeyptum flutningi eða mæta með vöruna til Heildsölunnar, nema með samþykki sölusviðs eða þjónustudeildar.
Frystivöru og kælivöru er ekki hægt að skila nema um galla sé að ræða eða ranga afhendingu.
Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins skulu endursendar með Eimskip eftir að samþykki sölusviðs liggur fyrir.
Kreditreikningur er gerður þegar varan kemur í hús og hefur verið yfirfarin.
Hafi vara skemmst í meðhöndlun starfsmanna þriðja aðila (t.d. flutningsaðila) eða ef misræmi er á milli fjölda afhentra vara og vörufylgiskjals, þarf móttakandi vöru að gera athugasemd við flutningsaðila við vöruafhendingu.
Reikningsviðskipti
Gjalddagi reikninga er almennt tíu dögum eftir að líðandi mánuði er lokið. Dráttarvextir reiknast á reikninga sem greiddir eru á eftir eindaga, í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, með síðari breytingum.
Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags.
Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast fjármálasviði Heildsölunnar innan 10 daga frá útgáfu reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.
Meðferð persónuupplýsinga
Með kaupum á vöru og þjónustu samþykkir þú skilmála Heildsölunnar varðandi söfnun og vinnslu á persónuupplýsingum.
Heildsalan skuldbindur sig, í tilvikum þar sem persónuupplýsingar eru skráðar s.s. vegna starfsumsókna, pantana á vörum, styrktarbeiðna eða í tengslum við markaðssetningu félagsins eða leiki, þar sem viðskiptavinur þarf mögulega að skrá nafn, heimilisfang, tölvupóstfang, síma eða aðrar persónuupplýsingar, til að meðhöndla þær í samræmi við gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Framangreindar upplýsingar eru varðveittar á öruggan og tryggan hátt og verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum án samþykkis aðila eða í kjölfar dómsúrskurðar.
Þú átt rétt á og getur óskað eftir upplýsingum um atriði eins og hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig, hverjir hafa aðgang að þeim, hvernig þær eru unnar og hvernig þær eru uppfærðar og/eða leiðréttar með því að senda fyrirspurn á bamberg@bambergehf.is.
Heildsölunni er heimilt að miðla persónuupplýsingum um þig til þriðja aðila sem er þjónustuaðili, verktaki eða umboðsmaður Heildsölunnar í þeim tilgangi að veita þér vöru eða þjónustu sem þú hefur óskað eftir. Heildsölunni er einnig heimilt, til verndar brýnustu lögvörðum hagsmunum, að deila upplýsingum t.d. vegna innheimtu vanskilakröfu.
Með samþykki skilmálanna á „mínum síðum“ Heildsölunnar samþykkir viðskiptavinur að Heildsalan nýti persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum. Notkun persónuupplýsinga á þennan hátt skal ávallt vera skv. skýru samþykki upplýsingaveitanda. Er það gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum félagsins sem besta þjónustu.
Lög og varnarþing
Íslensk lög gilda um skilmála þessa, samninga og eftir atvikum tilboð sem Heildsalan gerir við viðskiptavini sína. Ágreining um framkvæmd samnings skulu Heildsalan og viðskiptavinur leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Heimilt er að vísa ágreiningi til gerðardóms ef báðir aðilar eru því samþykkir og skulu lög nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma gilda um málsmeðferð fyrir gerðardómi.